20.11.2006 05:28:56 / B.
JónB, Björn og Elli eru
hressir. Erum komnir upp á herbergi þar sem komið
er að Ellanum að njóta hálfs-metra breiða beddans í nótt. Við
tveir félagarnir erum aftur á móti í góðu chilli hérna í queen
size rúmunum okkar.
Annars er það að frétta að erum
komnir í 4-liða úrslit eftir tvo góða sigra á fimmtudag og
laugardag.
Á fimmtudaginn
unnum við Park University 3-2. Jón skoraði fyrsta markið en þeir
komust síðan í 1-2 sem var staðan í hálfleik. Jón jafnaði síðan
eftir góða sendingu frá Birni sem setti síðan þriðja
markið.
Á laugardaginn spiluðum við síðan við
Oklahoma Christian í 8-liða úrslitum. Þeir unnu Embry Riddle í
16-liða úrslitum sem unnu okkur um daginn 4-0 þannig að við vissum
að það var erfiður leikur fyrir höndum. Þessi leikur var
tvímælalaust okkar besti leikur á þessu tímabili. Allt liðið
spilaði vel og allir að leggja sig 100% fram... verð samt að taka
það fram að Ellinn átti stórleik í hægri bakkaranum og að mínu mati
besti maður vallarins...... Annars vorum við töluvert betri í
leiknum og ótrúlegt tempó sem við náðum að halda nánast allan
leikinn. Þeir skoruðu að vísu fyrsta markið og var staðan í
hálfleik 0-1 fyrir þá. Í seinni hálfleik settum við tvö mörk frekar
snemma en þeir náðu síðan að jafna. Á 78.mín tryggði síðan BjörnV
okkur sigur með góðu marki úr víti sem hann fiskaði sjálfur eftir
sendingu frá JóniB.
Annars er búið að vera ótrúlega gaman
hérna og góð stemmning. Erum búnir að borða þvílíkt góðan mat hérna
en við erum búnir að fara tvisvar á stað sem heitir Stonewood og er
það án efa besti staður sem ég hef farið á hérna úti. JónB skellti
sér á laxinn og verð ég að segja að hann nartar í sporðinn á
Elliðarárlaxinn. Strákarnir fengu sér aftur á móti góða 9 oz steik
sem var algjör snilld. Er ég ekki í nokkrum vafa að þessi góða
hleðsla hjá liðinu hafi hjálpað okkur mikið að komast í gegnum
þessa tvo leiki.
Í dag(sunnudag) var síðan matarboð
fyrir liðin fjögur sem eru eftir og var það haldið aftur í Daytona
speedrace vellinum en núna í einhverjum VIP sal í staðin fyrir
einhverjum bílskúr eins og síðast. Það var ágætt, ágætis matur,
highlights myndband frá mörkum liðanna og eitthvað ræðubull og
svona týpískt dót.
Á morgun (mánudag) eru síðan 4-liða
úrslit. Okkar leikur er kl 8 um kvöldið á móti Graceland frá
Iowa.
Greinar og tölfræði um leikina má sjá
á:
http://fusion.erau.edu/naia/article.cfm?pageID=129
(Gegn Park í 16-liða úrslitum) og http://fusion.erau.edu/naia/article.cfm?pageID=139
(Gegn Oklahoma Christian í 8-liða úrslitum)

Strákarnir eftir leikinn gegn
Park

Checkiði á skekkjunni hjá
Þjóðverjanum á vinstri hönd.... hann er búinn að fara hamförum í
ferðinni. Þarna er hann að taka svipinn þegar hann er að líkja
eftir þjálfaranum.
Ljósmyndararnir greinilega að gera
góða hluti, ná hérna JóniB í góðri skekkju að fagna marki á móti
Park.

Eftir leikinn gegn Oklahoma
Christian

Hópmynd sem ljósmyndarar keppninnar
náðu. Vantar að vísu Björninn þarna.

Við með þremur strákum sem voru með
okkur í Mobile fyrir tveimur árum auk pabbi eins stráksins í Webber
sem tróð sér inn í myndina.

Við ready í annað
“banquet”-ið

Á banquetinu

Hópmynd á banquetinu

Í dag(sunnudag) var léttur göngutúr á
ströndinni.
Ein strandarskekkja að lokum...
aðeins fyrir skekkjufélagana.
Að lokum vil ég þakka Sonju fyrir
góða innkomu á skekkjuna.... án efa skekkjunýliði
ársins.